Jóna Ingibjörg, hjúkrunar-og kynfræðingur var í viðtali Í bítinu á Bylgjunni í janúar s.l. og fjallaði þar um verkefnið Kynlíf og krabbamein sem og örráðstefnu Krabbameinsfélagsins Kynlíf og krabbamein sem var haldin var daginn eftir viðtalið.
Category Archives: Kynlífsráðgjöf
Karl-Mennskan og kynlífið.
Fimmtudaginn 22. mars 2012 heldur Jóna Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrunar-og kynfræðingur og sérfr.í klinískri kynfræði (NACS) fyrirlestur sem ber heitið “Karl-Mennskan, kynlíf og náin sambönd. Hver er reynslan úr kynlífsráðgjöf og meðferð?”
Fyrirlesturinn er haldin í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Allir eru velkomnir og ókeypis aðgangur.
Val á titrara
Titrari er hjálpartæki. Líkt og önnur hjálpartæki auðveldar slíkt tæki daglegt líf; einnig hvað varðar kynlíf. Titrari, sem veitir jafna og stöðuga örvun á taugaenda í húðinni, magnar kynferðislega örvun og getur auðveldað fullnægingu. Bæði kynin nota titrara þótt mun algengara sé að konur noti slíkt tæki. Karlmaður með mænuskaða getur til dæmis nýtt sér titrara til að auðvelda framköllun á sáðláti.
Í hugum flestra er titrari áhald sem auðveldar konum að fá kynferðislega fullnægingu, ýmist með sjálfum sér eða rekkjunaut. Fullnæging er eitt af því góða við kynlíf og hefur ýmis jákvæð heilsufarsleg áhrif fyrir utan að veita vellíðan. Reglulegar fullnægingar efla ónæmiskerfið og styrkja grindarbotnsvöðvana svo fátt eitt sé nefnt. Kynferðisleg örvun og fullnæging eykur endorfín framleiðslu í líkamanum og það hækkar sársaukaþröskuld. Regluleg örvun með titrara getur einnig aukið á fjölda taugaenda í snípnum sem síðan getur stuðlað að kröftugri fullnægingum.
Nítjándu aldar uppfinning
Hjálpartækið titrari var fyrst framleitt sem “nuddtæki” í lok nítjándu aldar. Læknar þess tíma notuðu þessi hjálpartæki til að auðvelda sér að meðhöndla konur sem þjáðust m.a. af “hysteríu”, “kynkulda”, ófrjósemi og óþægindum í grindarbotni.

Er hægt að verða „háður“ notkun titrara?
Kynferðisleg fullnæging sem fæst með hjálp titrara finnst sumum vera kröftugri og betri því titraraörvunin helst jöfn og stöðug. Þvert á það sem sumir halda er ekki hægt að verða „háður“ titrara. Það kann að vera auðveldara (eða fljótara) að fá fullnægingu með titrara en tækið eyðileggur á engan hátt hæfileikann til að örvast kynferðislega á anna máta svo sem með munnmökum eða hendi. Konur sem eru vanar að nota titrara finnst kannski seinlegra að örvast kynferðislega ef þær nota ekki titrara en það þýðir ekki að þær séu „háðar“ þessu hjálpartæki. Þær eru bara orðnar vanar að örvast á ákveðinn hátt. Hinsvegar er hægt að venja líkamann í að örvast og fá fullnægingu á ákveðinn hátt og við því er bara eitt ráð: leika sér að því að örvast kynferðislega með fjölbreyttari hætti svo sem með munnmökum eða hendi.
Val á titrara
Ef þú hefur aldrei notað titrara og langar að prófa en hefur ekki hugmynd um hvaða titrara sé best að velja er gott að velta eftirfarandi atriðum fyrir sér. Titrarar sem mikið eru auglýstir eru ekki endilega heppilegustu titrararnir fyrir nýgræðinga á sviði hjálpartækja. Svonefndur kanínutitrari er eitt dæmi. Þessi titrari veitir örvun á mörg svæði kynfæranna og það getur verið hreinlega of mikið að „melta“ í einu. Betra er að einblína á eitt svæði í einu þegar byrjað er að prófa titrara.
Hvaða svæði líkamans á örvunin að beinast að? Titrara er bæði hægt að beita á sníp og skapabarma eða í leggöng. Flestar konur sem vilja örvast að fullnægingu nota þó aðallega titrara á snípinn og svæðið þar í kring. Ef þú hefur aldrei notað titrara áður er kannski ráð prófa einfaldan, ílangan plastitrara sem bæði er hægt að nota á sníp og í leggöng. Þá er hægt að fikra sig áfram með þá örvun sem þér finnst best.
Hversu mikil á örvunin að vera? Ef þú ert ekki viss er ráðlegt að prófa í fyrstu titrara þar sem hægt er að stilla styrkinn eftir því sem hentar. Það betra að þurfa að dempa kröftugan titrara til dæmis með því að beita honum öðruvísi en að sitja uppi með titrara sem er alls ekki nógu kröftugur og því hálf tilgangslaus.
Úr hvaða efni á titrarinn að vera? Hafi maður aldrei prófað titrara væri til dæmis óheppilegt að velja titrara úr mjúku efni svo sem silikoni eða gúmmí því slík efni dempa titringinn. Heppilegra er að prófa titrara úr plasti en þá finnst titringurinn betur.
Hversu hljóðlátur á titrarinn að vera? Flestir vilja hljóðláta titrara en það er borin von því í flestum þeirra heyrist eitthvað suð. Titrarar með rafmagnssnúru eru yfirleitt háværastir en það minna í batteríhlöðnum titrurum en það fer líka eftir á hvaða styrk þeir eru stilltir.
Hversu lengi á titrarinn að endast? Titrarar með rafmagnssnúrum endast oftast lengst og eru kröftugastir. Þessir titrarar eru líka ágætir fyrir baknudd. Batteríhlaðnir eða endurhlaðanlegir titrarar endast ekki eins vel en eru aftur á móti handhægir í ferðalagið.
Hér eru nokkrar vefsíður erlendra netverslana. Þar má finna aragrúa af ólíkum gerðum titrara, allt frá einföldum gerðum upp í hágæða hönnun. Á þessum vefsíðum má einnig finna margar gagnlegar upplýsingar um þessi hjálpartæki og notkun þeirra.
www.goodvibes.com
www.babeland.com
www.coco-de-mer.com
Testosterónskortur?
Hvað gerir testosterón?
Andrógenar eru hormón sem hafa meðal annars áhrif á æxlunafæri karla. Helsta andrógen hormónið er testosterón sem er aðal kynhormón karla, en það er einnig framleitt í litlu mæli í konum. Hjá körlum er um 95% af testósteróni myndað í eistum en 5% í nýrnahettum. Hjá körlum gegnir þetta kynhormón veigamiklu hlutverki. Það á meðal annars þátt í að viðhalda kynhvöt, kynsvörun (risi) og framleiðslu sáðfruma. Hormónið eykur einnig vöðvamassa, styrkir bein og örvar framleiðslu blóðfruma. Þetta kynhormón hefur þannig mikið að segja fyrir almenna líðan, sérstaklega hjá körlum.
Er testosterónskortur algengur hjá krabbameinsgreindum einstaklingum?
Þar sem testosterón gegnir ákveðnu hlutverki í sambandi við kynlöngun (eða kynhvöt) er minnkuð kynlöngun algengt kvörtunarefni meðal krabbameinsgreindra einstaklinga. Þetta sést hvað skýrast hjá karlmönnum sem eru á andrógenbælandi lyfjameðferð vegna blöðruhálskirtilskrabbameins. Í þeim tilvikum er stundum talað um “testosterónháð krabbamein”. Hjá körlum sem taka andrógenbælandi lyf lækka testosterón gildin verulega og kynhvötin dofnar. Minnkuð kynhvöt eða kynlöngun er því eitt af mögulegum aukaverkunum andrógenbælandi lyfjameðferðar.
Hvernig tekur karlmaður eftir minni kynlöngun hjá sér vegna andrógenbælandi lyfjameðferðar?
Aðeins um 10% karla halda óbreyttri kynlöngun meðan þeir eru á andrógenbælandi lyfjameðferð. Hjá þeim sem finna fyrir minnkaðri kynlöngun er einstaklingsbundið að hve miklu leyti það háir þeim. Fyrir marga er það ný upplifun því “engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur”. Kynferðislegur áhugi er miklu minni gagnvart maka, hugsanir af kynferðislegum toga koma sjaldnar upp dags daglega og þar fram eftir götunum. Skortur á testosteróni dregur úr framleiðslu sáðfruma svo sáðlát minnkar eða hverfur. Ristruflanir geta einnig látið á sér kræla því skortur á þessu kynhormóni hefur áhrif á vefi í limnum. Af þeim sökum geta fáir karlar á andrógenbælandi lyfjameðferð nýtt sér rislyf því svörun gagnvart þeim minnkar. Karlmenn á þessari lyfjameðferð hafa þann valkost að nota sprautulyf til að fá ris.
Hvað er hægt að gera þegar karlmenn missa kynhvötina vegna andrógenbælandi lyfja?
Ekki er hægt að gefa önnur lyf til að “lækna” þessa hvimleiðu aukaverkun. Eina lækningin eða ráðið er opinn hugur og góð samvinna við maka. Maki getur haft frumkvæði að náinni snertingu og kynlífi í meira mæli en áður. Ef karlmaðurinn er vanur að vera sá sem hefur frumkvæði í kynlífi getur honum litist misvel á að maki ætli að hafa frumkvæði að miklu eða öllu leyti. En það er einmitt það sem átt er við með að besta lækningin sé opinn hugur. Hinsvegar getur maki verið fullkomlega sáttur við hina minnkuðu kynhvöt og bæði litið svo á að þetta sé tímabil sem muni vonandi líða hjá. Eftir að töku andrógenbælandi lyfja er hætt getur liðið allt að ár þar til fyrri kynlöngun er náð.
Hér skiptir mestu máli að pör ræði málin og finni út hvaða nálgun henti þeim best. Það er líka mikilvægt að muna að þótt kynlöngun dofni er vel hægt að grípa til viljans og njóta líkamlegrar snertingar og kynferðislegrar ánægju með maka. Getan til að njóta snertingar er ekki horfinn þótt kynhvötin dofni. Þótt það kunni að hljóma ótrúlega þá finnst sumum körlum þeir jafnvel aldrei vera eins nánir maka og þegar þau einblína á það sem þau hafa og geta þótt ris sé ekki fyrir hendi.
Hverjar eru helstu ástæður testosterón skorts hjá körlum?
Það er aðallega þrennt sem hefur áhrif á framleiðslu og virkni testosteróns; hækkandi aldur, líkamlegir og sálrænir þættir.
Sé litið til hækkandi aldurs þá byrjar magn testosteróns að minnka smám saman eftir tvítugsaldur. Þegar 75 ára aldri er náð eru gildin orðin um það bil helmingi lægri. Þótt of lítið testosterón geti verið bagalegt og valdið ýmsum óþægindum er einnig ljóst að mörgum körlum, sem mælast með lág testosteróngildi, líður ágætlega og hafa lítil sem enginn skortseinkenni.
Líkamlegar ástæður fyrir minnkaðri testosterón framleiðslu eru margar og of langt mál að tíunda í stuttum fræðslupistli. Testosterónskortur er ýmist meðfæddur (svo sem Kleinfelter syndróm) eða áunninn (svo sem vanstarfssemi í kynkirtlum (eistum), missir eista vegna slysa eða aðgerðar, HIV-smit, heiladingulsæxli, lungnateppa, áfengismisnotkun, lifrasjúkdómar, offita, sykursýki af týpu 2, hjartasjúkdómar, stórar skurðaðgerðir eða andrógenbælandi lyfjameðferð). Þar að auki getur óhófleg líkamsrækt og/eða langtíma hjólreiðar geta einnig dregið úr testosterónframleiðslu.
Sálrænar ástæður testosterónskorts eru mýmargar. Má þar nefna langvarandi áhyggjur og/eða álag af ýmsu tagi svo sem atvinnumissir eða óvænt atvinnulok, fjárhagsáhyggjur, sorg eða miklir erfiðleikar í fjölskyldu.
Hver eru helstu merki um mögulegan skort á testosteróni?
Ef magn testosterón fer undir viðmiðunarmörk geta komið fram ýmis merki þess (en vert er að muna að sum þessara einkenna eiga sér líka aðrar eðlilegar ástæður). Í fyrsta lagi verður einstaklingurinn orkulítill og þreytist fljótt. Honum finnst hann kannski vera ólíkur sjálfum sér, er almennt áhugalaus (líka um kynlíf) eða verður gleymnari og pirraðri en venjulega. Risbreytingar láta á sér kræla; næturstinning (morgunstinning) gerist sjaldnar og endurteknar ristruflanir skaprauna honum og maka. Svörun við rislyfjameðferð er stundum undir væntingum eins og áður segir því testosterónskortur dregið úr virkni rislyfja. Sæðisframleiðsla verður minni. Líkaminn tekur breytingum: vöðvastyrkur verður minni, eistu minnka en kviður og brjóst stækka. Ennfremur fá sumir hita-og svitakóf, ekki ólík þeim sem verða hjá konum við tíðahvörf. En því fer fjarri að einstaklingar finni fyrir öllum áðurgreindum einkennum og einkennin eru mismikil milli einstaklinga. Í öllu falli þarf að staðfesta grun um testosterónskort með blóðrannsóknum. Við langvarandi og mikinn testosterónskort getur líkamshárum fækkað, aðallega undir höndum og á kynfærum, eistu verða greinilega minni, aukin hætta er á beinbrotum vegna beinþynningar, sæðisfrumum fækkar og einstaklingum er hættara við blóðleysi og svefntruflunum.
Hvernig er hægt að greina testosterón skort?
Einkennasaga og líkamleg skoðun eru liður í að greiningu en yfirleitt þarf að kanna mögulegan testosterónskort með blóðrannsókn. Í blóði er testósterón að finna á þremur formum. Einn hluti þess er sterkt bundinn flutningspróteininu sex hormone binding globulin (SHBG) og það testosterón er ekki virkt, annar er laust bundinn albúmíni og örlítill þriðji hluti þess er frír. Frítt testósterón og albúmín-bundið testósterón er það sem er nefnt „líffræðilega virkt testósterón „(bioavailable testosterone). Þetta þýðir að aðeins 1-2% testosteróns er frítt í blóði og nýtist fyrir virkni í frumum líkamans. Gildi á líffræðilega virku testosteróni endurspegla því best vanstarfssemi líkamans. Ef SHBG er mjög hátt eða lágt er ráðlegt að mæla virkt testosterón í blóði.
Hvenær er þörf á testosterón lyfjagjöf hjá körlum?
Þegar einstaklingur sýnir klinísk einkenni um vanstarfssemi í kynkirtlum og líffræðilega virkt testosterón mælist undir viðmiðunarmörkum kemur testosterón lyfjagjöf til greina. Testosterón er oftast gefið sem gel eða sprautur. Ekki er hægt að gefa testosterón í töflu formi, þar sem það er gagnslaust vegna niðurbrots strax í lifur.
Hvenær má ekki gefa viðbótar testosterón?
Ef krabbameinsfrumur í blöðruhálskirtli eru til staðar getur viðbótar testosterón ef til vill ýtt undir vöxt krabbameinsins. Hjá körlum, þar sem ekki er hægt að greina í nokkur ár hækkun á gildi PSA (prostate specific antigen) eftir meðferð vegna blöðruhálskirtliskrabbameins, telja margir óhætt að gefa testosterón lyfjagjöf (Morgentaler, A. 2011).
Heimildir:
Katz, Anne (2009). Man, cancer and sex. Hygeia Media.
Morgentaler, Abraham (2011). Testosterone therapy in the male cancer patient. Í J.P. Mulhall et al (ritstjórar)(2011). Cancer and Sexual Health, Current Clinical Urology. Humana Press.
Þjónustuhandbók Rannsóknasviðs LSH.
Örráðstefna um kynlíf og krabbamein
Ráðgjafaþjónusta Krabbameinsfélagsins stendur fyrir örráðstefnu um kynlíf og krabbamein fimmtudaginn 19. janúar n.k.
Verkefnið er í fullum gangi
Verkefnið Kynlíf & krabbamein sem í stuttu máli felst í innleiðingu krabbameinskynfræði (oncosexology) er í fullum gangi.
Um þessar mundir er verið að lagfæra vasaspjöld handa starfsfólki, fara með fræðslu inn á deildir og undirbúa næstu kannanir meðal sjúklinga og starfsfólks.
Verkefnið var nýverið kynnt á vísindaráðstefnu í hjúkrun. Einnig var boðið upp á fræðslu um kynlíf og krabbamein fyrir sjúklinga í svonefndri föstudagsfræðslu á Landspítalanum.
Og nýjar beiðnir um kynlífsráðgjöf berast í hverri viku.
Beiðnir um kynlífsráðgjöf
Það sem af er þessu ári hafa borist samtals 35 tilvísanir í kynlífsráðgjöf.
Beiðnir um kynlífsráðgjöf berast jafnt frá öllum sviðum verkefnisins; lyf-skurð og kvenlækningasviði LSH.
Einnig berast beiðnir utan Landspítalans frá einstaklingum sem hafa lokið meðferð, stundum fyrir mörgum árum.
Einstaklingar sem nýta sér ráðgjöfina eru á aldrinum 26-75 ára, flestir á miðjum aldri.
Jafnmargir konur og karlar hafa komið í ráðgjöf.
Flestir koma í ráðgjöf ásamt maka.
Þurrkur í leggöngum
Hjá konum og körlum getur meðferð krabbameins, hvort sem um er að ræða lyf, geisla eða aðgerðir, haft áhrif á húð og slímhúð líkamans - þar með talið í kynfærum. Slímhúð kynfæra getur orðið aum, viðkvæm og þurr.
Hjá konum getur þetta valdið óþægindum og sársauka við kynmök, sérstaklega við samfarir. Einnig er konum með leggangaþurrk hættara við að fá ýmsar bakteríu -og veirusýkingar í leggöng sem þarfnast meðhöndlunar.
Eðlilegt blóðflæði og hormónabúskapur stuðlar að heilbrigðri slímhúð í leggöngum.
Þegar blóðflæði í kynfærum dregst saman af einhverjum ástæðum berst minni næring og súrefni til slímhúðarinnar í leggöngum og hættan á þurrki eykst. Blóðflæði er nátengt slímmyndun í leggöngum því leggangaslím eða raki kemur frá blóði sem síast gegnum slímhúðina en ekki frá kirtlum. Kynferðisleg örvun eykur blóðflæði og þar með slímmyndun (blotnun).
Hormónið estrógen eykur blóðflæði og viðheldur bæði þykkt, raka og teygjanleika í slímhúð legganga. Það er framleitt í eggjastokkum og í litlum mæli í nýrnahettum og fylgju. Þegar estrógenframleiðsla í líkamanum minnkar dregur úr slímmyndun í leggöngum, slímhúðin þynnist og teygjanleiki minnkar. Þessar breytingar gerast venjulega á löngum tíma eins og við tíðahvörf og eru misáberandi hjá konum. Við meðferð krabbameins getur þetta hinsvegar gerst tiltölulega hratt.
Orsakir þurrks í leggöngum
Margt annað en krabbameinsmeðferð getur ýmist orsakað eða ýtt undir þurrk í leggöngum. Þetta nefni ég því mikilvægt er að skoða heilsufar í víðu samhengi, ekki eingöngu út frá greiningu og meðferð krabbameins. Þannig fæst skýrari mynd af orsakaþáttum og þar með réttri meðhöndlun.
1. Ýmsir aðrir sjúkdómar svo sem sykursýki, MS-sjúkdómurinn og Sjögrens heilkenni. Ómeðhöndlaðar leggangasýkingar (svo sem sveppasýkingar., bacterial vaginosis eða trichomoniasis vaginalis sýkingar).
Ráð: meðhöndlun sjúkdóma og/eða undirliggjandi einkenna. Þegar sveppasýking greinist er hún oftast meðhöndluð með sveppalyfjum á borð við Canesten og Pevaryl sem bæði fást án lyfseðlis í lyfjaverslunum. Til að draga úr líkum á að fá sveppasýkingu (svo sem þegar tekin eru sýklalyf, eftir tíðir eða eftir samfarir með nýjan rekkjunaut – sæðisvökvi getur breytt sýrustigi legganga og ýtt undir ójafnvægi í sveppaflórunni) er hægt að nota FemiCare eða Vivag hylki sem innihalda mjólkursýrugerla
2. Minnkuð estrógenframleiðsla svo sem vegna brottnáms eggjastokka, legslímuflakks, brjóstagjafa, tíðahvarfa eða vegna aukaverkana geisla -og lyfjameðferðar (andestrógen lyfjagjöf t.d. Tamoxifen og arómatasa hemlar t.d.Femar).
Ráð: þegar estrógenmagn líkamans minnkar eins og til dæmis við tíðahvörf velja sumar konur að nota hormóna til að draga úr tíðahvarfaeinkennum. Konur sem greinst hafa með hormónaháð krabbamein í brjóstum eða legi er hins vegar ráðlagt frá því að nota töflur og plástra með estrogeni.Við staðbundna estrógenmeðferð (krem/stílar/leggangainnlegg) berst hinsvegar aðeins örlítið magn estrógena um líkamann og er það ekki talið auka hættu á brjósta-og legkrabbameini.
3. Hvaðeina sem hefur áhrif á blóðflæði til grindarbotnsins svo sem ýmis lyf (t.d, andhistamín ; ofnæmislyf eða Depo-Provera), skortur á hreyfingu eða háþrýstingur.
Ráð: ráðfæra sig við lækni um aukaverkanir lyfja, hreyfing/líkamsrækt, meðhöndla háþrýsting.
4. Erting í leggöngum vegna kemískra efna í sápum, ilmefnum eða sem finnast í efnum sem notuð eru til að skola leggöngin, notkun túrtappa . Ofnæmi fyrir latex gúmmí í smokkum. Notkun á nærbuxum og sokkabuxum og öðrum fatnaði úr gerfiefnum.
Ráð: hætta notkun sápu og ilmefna á kynfæri og í leggöng (nóg að skola vel með vatni), nota dömubindi í stað túrtappa, nota bómull í stað gerfiefna í fatnaði, nota smokka sem gerðir eru úr öðrum efnum en latex svo sem lambsgörn (slíkir smokkar duga sem getnaðarvörn en ekki gagnvart mögulegu HIV-smiti).
5. Áföll, langvarandi álag og/eða þunglyndi.
Ráð: viðeigandi stuðningur, úrvinnsla áfalla og meðhöndlun þunglyndis.
6. Skortur á kynferðislegri örvun eða ófullnægjandi kynlíf (ekki endilega átt við fullnægingarerfiðleika). Margar ástæður geta legið að baki kynlífi sem ekki er gefandi svo sem sambandsörðugleikar og andleg vanlíðan af ýmsum toga. Síðan má ekki gleyma því að flest öll pör í langtíma samböndum ganga í gegnum ýmsar breytingar á kynlífssamskiptum án þess að það þurfi að vera af hinu slæma.
Ráð: viðeigandi stuðningur – ef til vill kynlífsráðgjöf. Í slíkri ráðgjöf er skoðað á hvern hátt hægt er að breyta kynlífssamskiptum svo þau verði áfram uppspretta vellíðunar og kynferðislegrar ánægju.
Það gleymist ótrúlega oft að þótt pör sleppi því að hafa samfarir, vegna óþæginda sem stafa af leggangaþurrk, er vel hægt að faðmast, kela, kyssast og stunda gagnkvæma fróun með ýmsum hætti. Einnig er hægt að herma eftir samfarahreyfingum án þess að hafa samfarir. Þá er setur karlinn liminn á milli læranna/brjóstanna (ráðlagt að nota sleipiefni) og líkir eftir samfarahreyfingum. Á íslensku vantar orð yfir þessa kynlífsathöfn en á ensku er hún kölluð “outercourse” í stað “intercourse” (samfarir). Myndi nýyrðið “utanfarir” ná utan um þessa kynlífsathöfn?!
Sleipiefni
Í kynlífsráðgjöfinni á Landspítalanum spyrja konur oft um hvaða sleipiefni sé ráðlegt að nota til að draga úr óþægindum við samfarir til dæmis vegna leggangaþurrks.
Lítum fyrst á hvaða efni eru ekki góð sleipiefni.
Olíur eru ekki góð sleipiefni
Ekki er mælt með því að nota olíur sem sleipiefni, hvorki jurtaolíur, barnaolíu, handáburð eða fituleysanleg smyrsl svo sem vaselín. Olíur og vaselín er torvelt að hreinsa af slímhúð og eru möguleg gróðrastía fyrir bakteríur og sveppi. Vaselín ætti fyrst og fremst að nota til að vernda húð. Einnig er óráðlegt að nota vaselín með latex gúmmí smokkum því það eyðileggur smokkinn með því að gera örlítil göt í gúmmíið. Ef fólk vill hins vegar prófa að nota olíur sem sleipiefni er kókosolía skást því húðin drekkur þá olíu auðveldast í sig.
Sleipiefni með aukaefnum eru óráðleg
Yfirleitt er ráðlegt að forðast öll sleipiefni, sé slímhúð legganga viðkvæm eða þurr, sem sögð eru ”auka næmi” eða vera “örvandi”. Þessi sleipiefni innihalda iðulega efni sem eru ertandi og/eða valda sviða svo sem capsaicin, mentolblöndur, acacia hunang eða mikið magn glyceríns (sem m.a. er hitagefandi) en sem getur valdið sveppasýkingu. Oft eru auglýst sleipiefni sem sögð eru hafa deyfandi áhrif en líta má á sársauka sem nauðsynlegan leiðarvísi fyrir eigið heilbrigði. Slík sleipiefni eru því óráðleg. Ennfremur innihalda þau staðdeyfilyf sem deyfa eigin kynfæri sem og bólfélagans. Þrátt fyrir að vera auglýst sem sleipiefni eða krem til að ”endast lengur” eru til önnur og skemmtilegri ráð til að njóta lengur samfara, sáðláts og fullnægingar.
Er munur á rakagefandi efnum og sleipiefnum?
Nokkurs misskilnings gætir í notkun hugtaksins “sleipiefni”, bæði meðal leikra og lærðra. Sumt sem nefnt er sleipiefni er það ekki.
Til eru bæði rakagefandi efni (vaginal moisturizers) og sleipiefni (lubricants). Rakagefandi efnum er ekki ætlað að vera sleipiefni fyrir samfarir heldur auka rakamyndun í leggöngum. Aukin raki getur að sjálfssögðu auðveldað samfarir en rakagefandi efni eru ekki eiginleg sleipiefni. Sleipiefnum er hinsvegar ætlað að draga úr óþægindum vegna núnings við samfarir. En að því sögðu eru nýlega komin fram á sjónarsviðið nýlegri sleipiefni sem eru rakagefandi og/eða loka raka inni á slímhúðinni.
Rakagefandi efni eru til án hormóna, til dæmis Replens, (langverkandi rakagefandi gel) eða með hormónum. Skiptar skoðanir eru núna uppi um ágæti þess að nota Replens vegna þess að það inniheldur steinefnaolíu (mineral oil) en notkun hennar í ýmsum vörum hefur verið bendluð við myndun góðkynja húðæxla.
Staðbundin meðferð í leggöngum með estrogen hormóni við aumri og þunnri slímhúð hefur meðal annars rakagefandi áhrif. Má þar nefna Ovestin (krem/stílar), Vagifem (stílar) og Estring (skeiðarinnlegg).
Vatnsleysanleg sleipiefni og silikon sleipiefni
Til eru tvenns konar sleipiefni sem hægt er að nota til að auðvelda samfarir og draga úr eymslum vegna núnings; vatnsleysanleg sleipiefni með eða án glyceríns og sleipiefni með silikoni. Báðar gerðir má nota með latex gúmmísmokkum.
Sleipiefni með glyceríni eru til dæmis K-Y smyrsl, Astroglide og Aloe Gel. K-Y smyrsl var upphaflega framleitt til notkunar í læknisfræðilegum tilgangi, til að auðvelda líkamsskoðun. K-Y smyrsl hefur mikið verið notað sem sleipiefni við samfarir en þornar tiltölulega fljótt og verður stundum klístrugt sem er ákveðinn annmarki fyrir elskendur. Stundum er hægt að kalla fram eiginleika vatnsleysilegra sleipiefna á ný með því að setja smávegis af vatni eða munnvatni á slímhúðina.
Sleipiefni með glyceríni henta síður konum sem eru gjarnar að fá sveppasýkingar eða eru sykursjúkar. Þeim er ráðlagt að nota frekar sleipiefni án glyceríns.
Sleipiefni án glyceríns eru til dæmis Liquid Silk, Slipperry Stuff og Pleasure Glide, Sliquid Organics Natural eða Silk og Maximus. Mér vitanlega fást þessi sleipiefni ekki hérlendis en þau má panta á netinu.
Sleipiefni með silikoni endast lengur og haldast á húðinni þar sem þau innihalda ekkert vatn. Það er líka kostur að þau má nota í baði eða sturtu. iLube, System JO, Eros og Wet platinum, Pink og ID millenium eru heiti á nokkrum þeirra. Sum þessara silikon sleipiefna fást í hjálpartækjaverslunum hérlendis.
Því miður virðast lyfjaverslanir ekki sjá ástæðu til að bjóða silikon sleipiefni til sölu. Hafa ber í huga að silikon sleipiefni mega ekki komast í snertingu við kynlífshjálpartæki úr silikoni eða svonefndt “cyberskin” því silikon eyðileggur yfirborð hjálpartækjanna.
Sérhæfð göngudeild um kynlífsheilbrigði
Á læknamiðstöðinni við Chicago háskóla er rekin sérhæfð göngudeild um kynheilbrigði * (sexual health) fyrir konur sem hafa greinst með krabbamein.
Göngudeildin ber heitið PRISM (Progam in Integrative Sexual Medicine) og þar starfar þverfaglegt teymi heilbrigðisstarfsfólks.
Deildin er fyrsta sérhæfða deildin af þessu tagi í Illinois fylki og ein af fáum slíkum deildum eða miðstöðvum í Bandaríkjunum.
Hér má geta þess að verkefnið Kynlíf & krabbamein er eina sérhæfða verkefnið á Íslandi sem hefur þann eina tilgang að efla kynlífsheilbrigði tengt ákveðinni sjúkdómagreiningu og meðferð. Með tíð og tíma verður slík þjónusta vonandi í boðið fyrir alla sem glíma við heilsubrest, sama af hvaða toga.
Tilgangur með starfssemi PRISM deildarinnar er að viðhalda kynlífs-og frjósemisheilbrigði hjá krabbameinsgreindum konum.
Þar býðst konum á öllum aldri, gagnkynhneigðum jafnt sem tví-og samkynhneigðum sérhæfð kynlífsráðgjöf og fræðsla.
Á PRISM deildinni eru líka stundar klinískar rannsóknir sem miða að því að bæta meðferð kynlífsvanda vegna krabbameinsgreiningar og meðferðar hjá konum.
Meðal verkefna deildarinnar má nefna:
- Fræðsla um áhrif krabbameins og meðferðar á kynlífsheilbrigði
- Ráðgjöf vegna sársauka við samfarir eða ótta við sársauka í kynfærum m.a. vegna sýnatöku eða kvenskoðunar
- Fræðsla og ráðgjöf um leiðir til að viðhalda eða endurheimta kynlífsvirkni fyrir og á meðan krabbameinsmeðferð stendur. Má þar nefna erfiðleika við blotnun, skort á kynlöngun eða vellíðan og fullnægingarerfiðleika.
- Ráðgjöf vegna óöryggis með kynímynd, kynhneigð eða kvíða sem tengist núverandi eða fyrirhuguðu kynlífi.
* Kynheilbrigði (sexual health) er tvíþætt: kynlífsheilbrigði og frjósemisheilbrigði.